• 00:07:40Sólveig Þorbergsdóttir - Heilsuvaktin
  • 00:31:14Seinni hluti jóla-örsagna ritlistarnema

Mannlegi þátturinn

Sólveig Þorbergsdóttir á Heilsuvaktinni og seinni hluti örsagna ritlistarnema

Mikill munur er á því fara í kulnun vegna streitu og of mikils vinnuálags en í kjölfar áfalls því þá hefur maður enga stjórn á atburðarás. Þetta segir Sólveig Þorbergsdóttir myndlistarkona enhún er ein þeirra Grindvíkinga sem missti heimilið sitt til næstum þrjátíu ára vegna jarðhræringa en hún hafði ásamt eiginmanni sínum unnið miklum endurbótum á húsinu í áraraðir. Hún keypti húsið illa farið, þá einstæð móðir með tvíburadrengi. Hún segir betur hefði mátt hlúa andlegri heilsu og líðan Grindvíkinga en gert var og hefur sjálf þurft leita eftir bjargráðum til takast á við það missa heimilið sitt varanlega. Helga Arnardóttir ræddi við Sólveigu á Heilsuvaktinni í dag, um það hvernig hægt er takast á við erfið áföll og eftirmála þeirra og líta á það sem jákvæða umbreytingu sem mögulega leiðir eitthvað gott af sér.

Út er komin árlega Jólabók Blekfjelagsins, örsagnasafn meistaranema í ritlist við Háskóla Íslands. Sögurnar eru 28 og allar telja þær nákvæmlega 88 orð, auk titils og yfirskriftin þetta árið er „Ómerkt“. Blekfjelagsið hefur gefið út þess háttar jólabók samfellt í 13 ár. fyrsta kom árið 2012 og þá áttu sögurnar innihalda nákvæmlega 100 orð auk titils. Á hverju ári fækkar orðunum um eitt og fyrir vikið eru þau núna 88. Við heyrðum fyrrihlutann á þriðjudaginn en í dag var seinni hlutinn fluttur í þættinum. Höfundar örsagnanna í dag voru: María Ramos, Jóhannes Árnason, Ösp Eldjárn Kristjánsdóttir, Vala Hauks, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Daníel Daníelsson, Gígja Sara Björnsson, Ásta H. Ólafsdóttir, Margrét Eymundardóttir, Birta Svavarsdóttir, Patricia Anna Þormar, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, Unnar Ingi Sæmundarson og Sturla Óskarsson.

Tónlistin í þættinum:

Hleyptu ljósi inn / Vigdís Hafliðadóttir og Villi Neto (Tasuro Yamashita, texti Vigdís Hafliðadóttir)

It was a very good year / Frank Sinatra (Erwin Drake)

It Came Upon a Midnight Clear / Ella Fitzgerald (Edmund Sears, Grace Price & Robert Black Willis)

Hvenær koma jólin / Björt Sigfinnsdóttir (Aðalheiður L. Borgþórsdóttir)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

19. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,