Mannlegi þátturinn

Vertonet, ástarþrá og ástarfælni og veðurspjallið með Einari

Við fræddumst um Vertonet, samtök kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi, í þættinum í dag, eða nánar tiltekið um átaksverkefni Vertonet sem er samvinnuverkefni yfir 20 fyrirtækja, samtaka og menntastofnanna í upplýsingatækni til auka hlut kvenna og kvára í tæknigeiranum á Íslandi. Tæknigeirinn hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og talið er það vanti um níu þúsund sérfræðinga til standa undir þeim vaxtaráformum sem eru til staðar í hugverkaiðnaðinum hér á landi. Ásdís Eir Símonardóttur, stjórnenda- og mannauðsráðgjafi og driffjöður átaksverkefnis Vertonet sagði okkur betur frá þessu í þættinum.

Viltu heilbrigðari samskipti og sambönd? Einlægni og nánd í stað spennu og fjarlægðar og vera með opið hjarta án ótta við höfnun? Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla- og uppeldisfræðum hún fræddii okkur í dag um óheilbrigð mynstur í samböndum sem fara sama hringinn aftur og aftur og koma í veg fyrir þá einlægni og nánd. Það sem í daglegu tali kallað ástarþrá og ástarfælni.

Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Hann talaði um hitann á landinu í nótt sem er óvenjulegur í alla staði, en þó ekki met þó nærri hafi farið. Hann tengdi hitann við uppruna loftsins suður í höfum og heitum sjó þar. Einar talaði svo um eftirtektarverða hita á Kanaríeyjum síðustu daga. Það rigndi mikið fyrir vestan og með vatnavöxtum og skemmdum á vegum, 111 mm. sólarhringsúrkoma á Hólum í Dýrafirði, sem þykir með mesta móti þar. Það er svo von á stórrigningu nýju á fimmutdag og svo skoðuðum í lokin við langtímaspána með Einari, en umskiptum er spáð á föstudag með kólnandi veðri.

Tónlist í þættinum

Einsemd / Snorri Helgason (Snorri Helgason og Guðmundur Óskar Guðmundsson)

Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)

Með vaxandi þrá / Geirmundur Valtýsson og Erna Gunnarsdóttir Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar (Geirmundur Valtýsson og Hjálmar Jónsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

12. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,