• 00:05:43Hulda Jóhannsd. í Grindavík - ári síðar
  • 00:31:21Sólveig Ólafsdóttir - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Hulda Jóhannsdóttir ári síðar og Sólveig Ólafsdóttir lesandi vikunnar

Grindvíkingar og aðrir landsmenn minntust þess um helgina ár er liðið frá rýmingunni í Grindavík og þann 16.nóvember 2023 tókum við viðtal við Huldu Jóhannsdóttur leikskólastjóra í Grindavík sem lýsti þessu áfalli en hún var í sömu stöðu og aðrir í Grindavík, þurfti yfirgefa heimilið sitt með hraði og óvissan mikil. Hulda skrifaði á þessum tíma færslu á facebook sem vakti athygli en þar talaði hún um það þyrfti huga börnunum og einnig starfsfólki grunn- og leikskóla. En hvernig hefur þetta ár liðið hjá Huldu og hvernig líður henni í dag? Við töluðum við Huldu í þættinum í dag.

Svo var það lesandi vikunnar, en í þetta sinn var það Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri hjá Menntavísindasviði HÍ. Sólveig sagði okkur frá sýningum um Frú Guðríði og séra Hallgrím Petursson sem hún er vinna fyrir nýopnaða menningarmiðstöð á Hvalsnesi og svo kom hún handritsgerð sjónvarpsþáttaröðinni Hvað var í matinn. En fyrst og fremst sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða höfundar og bækur hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Solveig talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Barrokkmeistarinn e. Margréti Eggertsdóttur

Ljóðmæli - Veraldlegur kveðskapur Hallgríms Péturssonar

Dótarímur e. Þórarinn Eldjárn

Jarðljós e. Gerði Kristnýju

Innanríkið e. Braga Ólafsson

Helga í öskustónni, Bangsímon, Kapítula, safn Halldórs Laxness, Jane Austen, Virginía Woolf, George Elliott, Karen Blixen, Simone de Bevoir, Charlotte Bronte og Gertrude Stein

Tónlist í þættinum

Reykingar / Stuðmenn (Lag og texti Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla)

Constant Craving / K.D. Lang (K.D. Lang & Ben Mink)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

11. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,