• 00:05:42Föstudagsgesturinn Björn Jörundur
  • 00:21:20Björn Jörundur - seinni hluti
  • 00:37:43Matarspjallið - Haust

Mannlegi þátturinn

Föstudagsgesturinn Björn Jörundur Friðbjörnsson og matarspjall um haustmat ofl.

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn er tónlistarmaðurinn og leikarinn Björn Jörundur Friðbjörnsson. Hann þarf vart kynna fyrir hlustendum en hefur auðvitað verið í hljómsveitinni Nýdönsk í vel á fjórða áratug, gefið út tónlist í eigin nafni auk fjölda annarra verkefna í tónlistinni. Hann hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, frá því hann lék sitt fyrsta hlutverk í Sódómu Reykjavík. síðast lék hann annað aðalhlutverkið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, sem var frumsýnd í síðustu viku.

Svo er það matarspjallið með frú Sigurlaugu Margréti. Í dag fikruðum mig okkur inn í haustið, varlega, og skoðuðum mat sem gott er ylja sér við í fækkandi hitastigum...ekki hitaeiningum.

Tónlist í þættinum:

Don’t try to fool me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)

Þá kemur þú / Nýdönsk (Björn Jörundur Friðbjörnsson)

Á sama tíma ári / Nýdönsk og Svanhildur Jakobsdóttir (Björn Jörundur Friðbjörnsson)

Frumflutt

13. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Helga Arnardóttir

Þættir

,