• 00:04:53Ebba Guðný - föstudagsgestur
  • 00:20:57Ebba Guðný - seinni hluti
  • 00:36:08Mataspjall - sumarmaturinn samantekt

Mannlegi þátturinn

Ebba Guðný föstudagsgestur og samantekt sumarsins í matarspjalli

Föstudagsgesturinn okkar þessu sinni er kennari og rithöfundur. Hún hefur skrifað nokkrar matreiðslubækur þar sem hollustan og fjölskyldan er í fyrirrúmi og einnig gert vinsæla matreiðsluþætti fyrir sjónvarp. Hún hefur tekið þátt í dansþáttum í sjónvarpi, þar sem hún sagðist hafa farið verulega út fyrir þægindarammann, og hún hefur einnig spreytt sig sem leikkona. Ebba Guðný Guðmundsdóttir var föstudagsgesturinn okkar í dag.

Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti hófst á í dag og við fórum yfir hvað umsjónarfólki fannst markverðast í matargerð á ferðalögum þeirra í sumar. Hvað stóð upp úr? Japan, Portúgal og Frakkland komu við sögu í matarspjalli dagsins.

Tónlist í þættinum:

Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson og Gunnar Þórðarsson)

Yfir skýin / Lúpína (Grímur Einarsson og Nína Solveig Andersen)

Guðirnir / Þríradda, Benedikt (Benedikt Gylfason)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

6. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Helga Arnardóttir

Þættir

,