Mannlegi þátturinn

Gosmengun, Barnamenningarhátíð, Vor í Árborg og póstkort úr Eyjum

Það gosmóða og gasmengun yfir höfuðborginni í gær. Gosmóða eða blámóða hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða og getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn eiga forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum. Ekki er mælt með því láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður. Við fengum Helga Guðjónsson, verkefnastjóra í einingu vöktunar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til fræða okkur frekar um gasmengun og gosmóðu í dag.

Við hringdum svo í Björgu Jónsdóttur, verkefnisstjóra Barnamennigarhátíðarinnar sem stendur yfir í Reykjavík. Það er fjölbreytt dagskrá og ókeypis er inn á alla viðburði á dagskránni, en hana er hægt nálgast á barnamenningarhatid.is

Svo er fræddumst við um Vor í Árborg og barnabókahetjur heimsins. En í grunn- og leikskólum Árborgar eru töluð yfir 30 tungumál og á morgun, sumardaginn fyrsta, verður opnuð sýning á Bókasafni Árborgar þar sem verða kynntar barnabækur á öllum þessum tungumálum og sérstaklega söguhetjur úr bókunum sem munu lifna við í skrúðgöngu Skátafélagsins Fossbúa á morgun. Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar Árborgar kom í þáttinn og sagði frá.

Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og í korti dagsins voru Vestmannaeyjar til umfjöllunar. Vorið hefur verið blítt hingað til í Eyjum. Magnús segir frá skömmum sem hann fékk þegar hann sagði Helgafellið fegurra en Heimaklett, en Heimaklettur er nánast heilagur í huga eyjamanna. Hann segir líka frá ferðamönnunum sem eru farnir streyma til Eyja á nýjan leik eftir og allir vilja þeir sjá lundann sem er eins og eyjamenn segja ljúfastur allra fugla.

Tónlist í þættinum

Ítalskur Calypso / Erla Þorsteinsdóttir (erlent lag, texti Loftur Guðmundsson)

Turistens klagan / Cornelis Vreesjwik (Cornelis V.)

Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)

Heitt Toddý / Ellen Kristjánsdóttir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson)

Things We Said Today / The Beatles (Lennon & McCartney)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

24. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,