• 00:06:11Berglind Festival - föstudagsgestur
  • 00:25:32Berglind Festival - seinni hluti
  • 00:38:35Matarspjall - skólanesti og sælusnakk

Mannlegi þátturinn

Berglind Festival föstudagsgestur og sælusnakk

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Berglind Pétursdóttir, eða Berglind Festival. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir innkomur sínar í þáttunum Vikan með Gísla Marteini á föstudagskvöldum og síðasta föstudag, í fyrsta þætti vetrarins, sló hún í gegn þegar hún lýsti íslensku sumarkonunni, með hatt í ponsjói og kampavínsglas í hendi við laxveiðiá. Berglind er menntaður dansari en hefur starfað sem markaðssérfræðingur hjá Símanum, markaðs og samfélagsmiðlasérfræðingur hjá ENNEMM og Íslensku auglýsingastofunni og er starfandi hugmynda og textasmiður á auglýsingastofunni HN Markaðssamskipti. Einnig var hún kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík frá 2019-2021 á mjög sérkennilegu tímabili. Það var gaman tala við Berglindi Festival í þættinum í dag.

Í matarspjalli dagsins tókum við svo upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram ræða skólanesti frá því er við vorum ung, talsverð nostalgía sem fylgdi því ræða t.d. smurt brauð, nestisbox og svo framvegis. Svo hófum við nýja umræðu um sælu, ekki sakbitna sælu, heldur hvað okkur þykir best okkur fyrir framan sjónvarpið á kósý kvöldum.

Tónlist í þættinum í dag:

Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson og Halldór Gunnarsson)

Það sýnir sig / Una Torfadóttir og Hjálmar (Sigurður Guðmundsson)

You Turn Me On, I?m a Radio / Joni Mitchell (Joni Mitchell og Liam Wade)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

6. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,