Fyrirhuguðum heimflutningi íslenskra strandaglópa í Ísrael var seinkað í dag en nú er hópurinn kominn til Amman í Jórdaníu, og áætlað er að flugvélin fari í loftið kl. 1815 að íslenskum tíma. Þetta er um hundrað manna hópur Íslendinga sem var á ferðalagi um Ísrael þegar stríðsátök brutust þar út um helgina. Við ætlum að freista þess að heyra í fararstjóranum Sigurði Kolbeinssyni hér á eftir.
Þingvellir eru náttúruundur á heimsvísu og staðurinn er einn sá allra vinsælasti þegar kemur að heimsóknum ferðamanna til Íslands. Margir velta því fyrir sér hvort uppbygging á staðnum sé í takt við þann fjölda sem þangað kemur, nýjustu tölur segja 1, 2 milljón manns. Þetta fólk þarf á þjónustu að halda og salerni eru þar engin undantekning. En það er flókið mál því mjög ströng reglugerð gildir um meðferð fráveitu á þessu svæði. Núna fer allt úr salernum á Þingvöllum í lokaða tankbíla sem flytja úrganginn í hreinsistöð við Sundahöfn. Þessu fylgir mikill kostnaður Einar Á.E. Sæmundsen er þjóðgarðsvörður á Þingvöllum hann kemur til okkar.
Nýlega skrifaði Valgeir Magnússon viðskipta- og hagfræðingur hugleiðigar um stýrivaxtahækkanir og Ásgeir Jónsson seðlabankastjórann og skrifaði hann meðal annars: Nú eftir þennan langa tíma er hann farinn að hljóma eins og bitur og pirraður stjórnandi. Það er yfirleitt merki um að hann sé orðinn of þreyttur á verkefninu. Bitur og þreyttur stjórnandi fær engan með sér og er bara fyrir.
Er Valgeir með lausnir við hugsanlegum vanda? Hafa viðbrögðin verið einhver frá seðlabankastjórnanum sjálfum? Við komumst að því á eftir.
Þrír verðlaunahafar í matreiðslukeppnum kokkaskóla í Suður-Evrópu heimsóttu Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum nýverið til þess að kynna sér vinnslu á saltfiski. Kokkarnir koma frá Spáni, Portugal og Ítalíu sem eru lönd sem eiga það sameiginlegt að þar er saltfiskur í hávegum hafður. Björgvin Þór Björgvinsson frá Íslandsstofu leiddi hópinn. Hann segir okkur nánar frá tilgangi heimsóknarinnar á eftir.
Hamas samtökin gerðu ofsafengna eldflaugaárás á Ísrael á laugardagsmorgun. Þeir segjast hafa skotið yfir 5.000 flugskeytum, en Ísraelar segja þau hafa verið rúmlega 2.000. Yfir 700 Ísraelar hafa farist frá því Hamas lagði til atlögu á laugardagsmorgun. Rúmlega 500 hafa farist í árásum Ísraelshers á Gaza. Nýjustu fréttir herma að fjárhagsaðstoð Evrópusambandsins til Palestínu hafi verið stöðvuð og Ísraelsmenn hafi lokað í morgun fyrir vatn og rafmagn til íbúa Gaza-strandarinnar.Bjarni Pétur Jónsson fréttamaður hefur fylgst með gangi mála síðustu klukkustu