• 00:03:16Halla Þórðardóttir/ Sólin er hringur
  • 00:17:59Hverfa og Órætt algleymi, Rýni
  • 00:31:12Sif Margrét Tulinius / De Lumine

Víðsjá

Halla Þórðardóttir, Sif Margrét Tulinius og Íslenski dansflokkurinn/rýni

Við kynnum okkur nýútkomna hljómplötu sem ber titilinn De Lumine, eða varðandi ljósið. Fiðluleikarinn Sif Margrét Tulinius segir titilinn einkennandi fyrir verkin sem hún leikur á plötunni, sem innihalda meira ljós en myrkur þrátt fyrir sterkar andstæður í tónlistinni. Um er ræða þrjú einleiksverk fyrir fiðlu, eftir jafn mörg íslensk tónskáld, þá Hjálmar H Ragnarsson, Huga Guðmundsson og Viktor Orra Árnason. Sif Margrét kemur til okkar í lok þáttar og segir okkur nánar af verkefninu.

Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, en hann fór á frumsýningu hjá Íslenska dansflokknum síðastliðinn föstudag. Flokkurinn sýndi tvö verk: Órætt algleymi eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur og Hverfa eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur.

En við byrjum á því heyra af nýrri ljóðabók sem kallast Sólin er hringur. Höfundur bókarinnar Halla Þórðardóttir er atvinnudansari, starfaði með Íslenska dansflokknum í áratug en Sólin er hringur er hennar fyrsta útgefna skáldverk. Það er taktur og töluverður dans í ljóðum Höllu og tengsl líkama og náttúru eru þar rauður þráður. Hún segir þessi tvö listform, dansinn og ljóðið ansi tengd, og stefnir á virkja þau tengsl áfram.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

5. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,