• 00:03:01Ófeigur Sigurðsson-Skrípið
  • 00:19:35Magnea Guðmundsdóttir arkitekt
  • 00:28:25Ljóðabækur Skriðu

Víðsjá

Ófeigur Sigurðsson um Skrípið, Magnea Guðmundsdóttir-pistill, ljóðabækur Skriðu

Í skáldsögunni Skrípinu, eftir Ófeig Sigurð, segir frá ónefndu og ástríðufullu tónskáldi sem ætlar sér endurskapa sögulega tónleika píanóleikarans Vladimirs Horowitz með heilmyndarflutningi á Eldborgarsviði Hörpu. Tónskáldið dreymir um endurreisn evrópskrar menningar og finnst allt hafi verið betra árið 1986, þegar fólkið var ekki eins sjúkt í deyfð og flatneskju og stjórnmálamenn hlustuðu á tónlist og lásu bókmenntir. Víðsjá mælti sér mót við rithöfundinn Ófeig Sigurðsson á koníakstofunni á Hótel Holti í morgun.

Magnea Guðmundsdóttir arkitekt fjallar um arkitektúr í fortíð og framtíð, skjái, gler, vindhviður og táknmyndir í módernískum arkitektúr.

Á dögunum komu út tvær ljóðabækur hjá Skriðu bókaútgáfu sem staðsett er á Patreksfirði. Það eru bækurnar Svefnhof eftir Svövu Þorsteinsdóttur og Heimkynni eftir Þórð Sævar Jónsson. Báðar bækur eru afar fallegir gripir sem prentaðir eru á prentverkstæði Skriðu fyrir vestan. Tómas Ævar tekur höfunda bókanna tali í þætti dagsins.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

21. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,