Anne Carson og Ölver
Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni…
Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna.
Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu möguleika sem leynast í starfinu.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.