Víðsjá

Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar

Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð Hallgrímsson og Ásu Önnu Ólafsdóttur, eða Asalaus.

Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, hefur nýja pistlaröð í dag um íslenskuna okkar og um fornar og nýjar frændtungur hennar. Hann fer með okkur aftur á bronsöld og við heyrum um málin sem voru töluð í Tyrklandi þegar Trójuborg stóð með blóma. Í síðari hluta þáttar minnumst við svo Dolly Parton og hlýðum á nokkur lög eftir þá mögnuðu konu.

Birt

26. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,