Víðsjá

Læknar og borgarskipulag, Hallbjörg Bjarnadóttir og afmæliskort frá Hildigunni Birgisdóttur

Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í sýningu sem hún kallar Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn.

Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, heldur áfram umfjöllun sinni um félagsleg húsnæði hér á landi. Í dag er hún með hugan við þátt lækna í uppbyggingu Reykjavíkurborgar.

lokum hugum við söngkonunni og skemmtikraftinum Hallbjörgu Bjarnadóttur og kynnum okkur menningarólgu við landnám djasstónlistar á Íslandi.

Frumflutt

24. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,