Víðsjá

Slökkvistöðin, Elva Rún Kristinsdóttir, Þú ringlaði karlmaður /rýni, Aftökunóttin

Í Slökkvistöðinni í Gufunesi opnar á morgun ljósmyndasýning á verkum Helga Vignis Bragasonar sem kallast Ábati: hugleiðing um efni. Ljósmyndun kom seint inn í líf Helga sem starfaði frá 10 ára aldri við byggingarframkvæmdir. beinir hann fyrst og fremst linsunni þeim iðnaði og með nokkuð gagnrýnu auga, vel gáð. Síðustu ár hefur Helgi einbeitt sér stærstu byggingarframkvæmd Íslandssögunnar, nýja Landsspítalanum. VIð ræðum við Helga og Birtu Fróðadóttur sýningarstjóra í þætti dagsins.

Í dag er hrekkjavaka, upphaf hins gamla veturs, dagur hinna dauðu, - og við höldum af því tilefni á myrkari mið og minnumst þeirra skálda og menningarvita sem tekin voru af lífi í fjöldaaftökum í Sovétríkjunum á tímum stalínismans.

Sölvi Halldórsson verður einnig með okkur í dag, og rýnir þessu sinni í bók Rúnars Helga Vignissonar, Þú ringlaði karlmaður: tilraun til kerfisuppfærslu.

En við hefjum þáttinn á því heyra í fiðluleikaranum Elfu Rún Kristinsdóttur sem heldur tónleika í Fríkirkjunni á morgun.

Frumflutt

31. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,