• 00:02:22Skógarhögg - geðshræring: Thomas Bernhard
  • 00:22:04Ungfrú Ísland - rýni
  • 00:34:16Alter Eygló semur karókíklög

Víðsjá

Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni

Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ölveri gefst gestum viðburðarins kostur á spreyta sig á þessum glænýju karókílögum og fylgja Alter Eygló inn í hugleiðingar um neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur baki.

Leikverkið Ungfrú Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 17.janúar síðastliðinn. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur en það eru þau Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson sem unnu leikgerðina, og Gréta Kristín leikstýrir jafnframt verkinu. Við heyrum hvað einum af leikhúsrýnum þáttarins fannst um þessa leikgerð, en þessu sinni er það Katla Ársælsdóttir sem rýnir.

En við byrjum þáttinn á því kynna okkur splunkunýja þýðingu á verki sem kom fyrst út í Austurríki árið 1984. Skógarhögg-geðshræring, eftir Thomas Bernhard, olli mikilli ólgu í menningarlífi Vínarborgar þegar hún kom út og var fjarlægð úr bókabúðum vegna átaka um ærumeiðingar. Bókina þýddi Hjálmar Sveinsson, sem segir bókina eiga einstaklega vel við okkar tíma. Tíma sem einkennist af leit okkar, hér í velmegunarþjóðfélögunum, sannleika, með ýmsum leiðum, því það einhver kjarni sem við söknum úr lífinu. Þrá í sannleika, en einnig fegurð, hans mati kjarni bókarinnar.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

27. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,