Víðsjá

Hallgrímur Árnason/Ró og Æði, David Lynch og árið 2024 í arkitektúr/Magnea Guðmundsdóttir

David Lynch sótti Ísland heim árið 2009 og þá tók kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir viðtal við hann í útvarpsþættinum Kviku. Þau ræddu meðal annars innhverfa íhugun, en David Lynch hefur verið mikill talsmaður hugleiðslu í sinni nálgun. Hann líkti hugmyndum við fiska; Ef þú vilt veiða litla fiska, haltu þig í grunnu vatni. En ef þú vilt stórum fiskum þarftu fara á dýpið, sagði hann meðal annars. Við heyrum brot úr viðtali Sigríðar Pétursdóttur og David Lynch í síðari hluta þáttar og bendum áhugasömum á það í kvöld, kl 20 á íslenskum tíma, fer fram hóphugleiðsla í nafni afmælisbarnsins um heim allan. Tilvalið tækifæri fyrir lærða og leikna opna hugann og veiða stóra fiska.

Við heyrum einnig hugleiðingar Magneu Guðmundsdóttir arkitekts um það sem árið 2024 færði okkur í arkitektúr. Þar ber græna vegginn við Álfabakka auðvitað einna hæst en ef það er eitthvað sem við getum lært af því klúðri, segir Magnea, þá er það mannvirkjagerð snýst ekki bara um reisa veggi. Það þarf gera betur og mennskan og umhverfið ættu alltaf vera samhengið og forsendan.

En við byrjum á því fara vestur á Granda, í Listval, þar sem Hallgrímur Árnason opnaði um liðna helgi sýninguna og æði. Hallgrímur flutti til Vínar fyrir rúmum áratug til þess læra arkitektúr. Fyrir röð tilviljana, í bland við ást og kórónaveirufaraldur, starfar hann í dag sem myndlistarmaður og er á kafi í málverkinu. Það þó segja hann hafi ekki alveg sagt skilið við arkitektúrinn þvi efniskennd og rými eru honum hugleikin á striganum. Sem og áferð og tími. Hann sér endapunkt verkanna aldrei fyrir og segir tilhlökkunina eftir óvæntri útkomunni vera drifkraftinn baki sköpuninni.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

20. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,