Víðsjá

Feneyjatvíæringur í arkitektúr, uppistand innflytjenda, Sigmar Þór Matthíasson

Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr fer fram í 19. sinn á næsta ári og Ísland tekur þá þátt í fyrsta sinn. Tilkynnt var um það í síðustu viku verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið sem framlag Íslands. Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem hefur umsjón með verkefninu og Gerður Jónsdóttir er verkefnastjóri þátttöku Íslands. Við ræðum við hana í þætti dagisns.

Katla Ársælsdóttir segir frá uppistandinu Belonging þar sem fimm innflytjendur stigu á stokk og fjölluðu á kómískan hátt um reynslu sína af því búa á íslandi.

Nýlega sendi tónlistarmaðurinn Sigmar Þór Matthíasson frá sér nýja plötu sem nefnist Uneven Equator, en á henni blandar hann saman jazzi og austrænni heimstónlist. Tómas Ævar ræðir við Sigmar í þætti dagsins.

Frumflutt

10. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,