• 00:02:53Jarðljós / rýni
  • 00:10:03Nordic Affect og Óperugala Norðuróps / rýni
  • 00:20:33Eva Rún Snorradóttir um Eldri konur

Víðsjá

Eldri konur, Jarðljós/rýni, Nordic Affect og Norðuróp/rýni

Við lítum í heimsókn til Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, í þætti dagsins. Eva Rún var gefa út Eldri konur, sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur Eva Rún gefið skáldverkið Óskilamuni og þrjár ljóðabækur. Eldri konur fjallar um konu með þráhyggju fyrir eldri konum. Aðalpersónan rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsáranna gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Bókina byggir Eva Rún einhverju leyti á eigin reynslu.

Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tónleika Nordic Affect sem fóru fram í Mengi þann 18.nóvember, og óperugalatónleika Norðuróps sem fóru fram þann 16.nóvember í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.

Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Jarðljós, tíundu ljóðabók Gerðar Kristnýjar.

Frumflutt

26. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,