Víðsjá

Happy Pinoy, sending frá Feneyjum og Mahler

Happy Pinoy er listhópur Filippseyinga á Íslandi, og þau ætla taka Klúbb listahátíðar yfir í Iðnó á laugardag. Hópurinn lýsir sér sem asísku klisjunni því saman hlæja þau, elda og syngja. Á viðburðinum ætla þau bjóða upp á filippíska menningu, meðal annars Sinulog-dansa, hlaðborð matar á bananalaufum, harana-serenöður, ljóðlist og karókí. Við kíkjum í heimsókn til Marví Gil en íbúð hennar var full af vinum og vandamönnum, mat, blómum, kertum og skrautlegum búningum þegar Víðsjá bar garði.

Nýútskrifaðir nemar úr myndlist frá Listaháskólnum og úr listfræði frá Háskóla Íslands sem eru staddir í Feneyjum sem starfsnemar senda okkur hugleiðingu í þættinum um það sem fyrir augu ber á Feneyjartvíæringnum. þessu sinni er það Herdís Hlíf Þorvaldsdóttir sem lætur í sér heyra.

Og við kynnum okkur einnig hina feiknarstóru og mikilfenglegu Þriðju sinfóníu Mahlers, en hún fær hljóma í Hörpu í kvöld í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þriggja kóra og einsöngvara, undir stjórn Evu Ollikainen.

Frumflutt

6. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,