Víðsjá

Gréta Kristín Ómarsdóttir um Ungfrú Ísland, Schoenberg og bruninn í LA, Helen Cova

Annað kvöld verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú Ísland. Sagan hverfist um fjóra einstaklinga í Reykjavík árið 1963 sem allir hafa sína drauma en misjöfn tækifæri til láta þá rætast. Þetta eru tímar samfélagslegra jarðhræringa og handan við hornið eru baráttur og byltingar. Við ræðum við leikstjórann Grétu Kristínu Ómarsdóttur í þætti dagsins.

Um liðna helgi bárust okkur fréttir af því yfir 100.000 nótnahandrit Schoenbergs hefðu glatast í yfirstandandi eldsvoða í Los Angeles. Mörgum var brugðið við fréttirnar, og eins við myndum sem fóru um samfélagsmiðla þar sem Hollywood skiltið fræga stóð í ljósum logum. Við kynnum okkur málin frekar í síðari hluta þáttar.

Og við heyrum í Helen Cova en ljóði eftir hana var skotið til tunglsins í gær.

Frumflutt

16. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,