Víðsjá

Sigurhæðir, snjallhljóðfæri, Hildur-rýni

,,Gaman kynnast þér" er yfirskrift tónleika sem fara fram í Mengi í kvöld. Þar mætast sex tónlistarmenn með mjög ólíkan bakgrunn og ólík hljóðfæri; barokkhljóðfæri, víetnömsk hljóðfæri og gervigreindarhljóðfæri. Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari Nordic Affect, og Nicola Privato, sem leikur á snjallhljóðfærið Stacco segja okkur frá tilraunaverkefninu, sem unnið er í samstarfi við Intelligent Instruments Lab í Reykjavík og víetnamsk-sænska tónlistarhópinn Six Tones.

Einnig heyrum við ritdóm frá Grétu Sigríði Einarsdóttur. Hún var lesa Hildi, skáldsögu eftir Satu Remö, sem kom út í Finnlandi 2022 en kom nýverið út í íslenskri þýðingu Erlu Elíasdóttur Völudóttur.

En við byrjum á Akureyri, í menningarhúsinu Flóru í Sigurhæðum. Þetta er undurfagurt og einstakt hús sem er í eigu Akureyrarbæjar og hýsir ótrúlega fjölbreytta menningarstarfi. Halla hitti Kristínu Þóru Kjartansdóttur, verkefnastjóra og staðarhaldara í Sigurhæðum, sem leiddi hana um húsið.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

17. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,