Víðsjá

Gabríela Friðriksdóttir, Hinsegin Salka Valka, Haukur Þorgeirs pistill #6

„Ef maður er ekki alltaf að, þá er hjartað manns ekki opið fyrir tækifærunum. Í gamla daga voru menn oft vinna bara fyrir ákveðnar sýningar, en ég held þetta öfugt. Þú bara gerir og gerir og þá kemur sýningin til þín. Þetta er þannig sem þetta virkar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir. Í vikunni verður sýndarveruleika innsetningin Playing with Fire, sem hún gerði í samstarfi við píanóstjörnuna Yuja Wang og leikstjórann Pierre-Alain Girraud, frumsýnd í Cannes, en verkið er tilnefnt til Gullpálmans í flokki alltumlykjandi innsetninga. Verkið var frumflutt í Fílharmóníunni í París fyrr í vetur og verður sýnt víða um heim í framhaldinu, en Gabríela segir það vera einskonar mannkynssögu fyrir skilningarvitin. Meira um það í þætti dagsins.

Ásta Kristín Benediktsdóttir, bókmenntafræðingur, lítur einnig við og segir frá hinsegin lestri á skáldsögunni Sölku Völku eftir Halldór Laxness, og Haukur Þorgeirsson veltir fyrir sér raunveruleikanum á bak við helgikvæði um konur sem dóu fyrir trúarsannfæringu sína.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,