Víðsjá

Svipmynd - Snæbjörn Brynjarsson

Í þætti dagsins verður einmitt boðið upp á svipmynd af nýjum leikhússtjóra Tjarnarbíós. Snæbjörn Brynjarsson er fæddur árið 1984, er með BA-próf í fræðum og framkvæmd frá listaháskóla Íslands og BA-próf í japönsku máli og menningu frá Háskóla Íslands. Hann hefur farið mjög víða á sínum ferli, skrifað fantasíur fyrir ungmenni, ferðast um Evrópu með frönskum leikhópi, starfað sem varaþingmaður og leikhúsrýnir og stofnað og rekið gallerí og listahátíð í Kópavogi. Síðustu árin hefur Snæbjörn verið safnstjóri Listasafns Svavars Guðnasonar sem staðsett er á Höfn í Hornafirði. En hefur hann snúið aftur til höfuðstaðarins og tekið sér stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

11. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,