Víðsjá

Jólalag Ríkisútvarpsins 2025, Leikárið 2025, Ósmann/rýni, Þyngsta frumefnið/rýni,

Hreiðar Ingi Þorsteinsson er höfundur Jólalags Ríkisútvarpsins árið 2025. Lagið samdi hann við gamla þjóðvísu, Kerling heitir Grýla, sem birtist án tilgreinds höfundar í Stafrófskveri handa börnum, útgefnu á Akureyri, árið 1873. Hreiðar Ingi er jafnframt stjórnandi kammerkórsins Huldar, sem flytur lagið, en Huldur er óvenjulegur kór sem frumflutt hefur fjölda íslenskra kórverka á skammri ævi sinni. Hreiðar Ingi leit við í hljóðstofu fyrir frumflutninginn.

Gauti Kristmannsson og Soffía Auður Birgisdóttir rýna síðustu tvær bækurnar fyrir jól, Ósmann Joachims Schmidt og Þyngsta frumefni Jóns Kalmans, en við eigum þó eftir heyra fleiri umfjallanir um bækur eftir áramót, enda jólabókaflóðið langt í frá uppurið.

En við byrjum á því gera upp leikárið, með Trausta Ólafssyni.

Frumflutt

22. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,