Víðsjá

Svipmynd: Rúnar Rúnarsson leikstjóri

Það segja stuttmyndin Síðasti bærinn hafi sett ákveðin tón í höfundaverk Rúnars Rúnarssonar leikstjóra sem hefur ómað síðan. Kvikmyndir Rúnars eru oftar en ekki teknar á filmu, þær eru ljóðrænar þroskasögur um fólk á tímamótum, þar sem umhverfið leikur stórt hlutverk. Þetta eru stórar sögur sem fjalla um það smáa í tilverunni.

Hann komst inn í Danska kvikmyndaháskólann með Síðasta bænum og hún ferðaðist um heiminn, hlaut fjölda alþjóðlegra verðlauna og var þar auki tilnefnd til Óskarsverðlauna. Tvær stuttmyndir sem einnig nutu mikilla velgengni fylgdu í kjölfarið og árið 2011 frumsýndi Rúnar Eldfjall, sína fyrstu mynd í fullri lengd. Þrestir og Bergmál komu í kjölfarið og velgengni Rúnars á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum hélt áfram.

Rúnar frumsýnir sína nýjustu kvikmynd Ljósbrot á Cannes á næstu dögum en hún er opnunarmynd í Un Certain Regard-flokki hátíðar­inn­ar, þar sem kvik­mynd­um sem sýna list­ræna djörf­ung er hampað. Rúnar verður gestur Víðsjár í Svipmynd dagsins.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Frumflutt

15. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,