Víðsjá

Svipmynd af saxófónleikara / Guðjón Steinn Skúlason

Guðjón Steinn Skúlason, saxófónleikari og tónsmiður, er fæddur árið 2004. Hann ólst upp í Reykjanesbæ og var snemma farinn skapa. Þegar hann var síðar kominn í einkatíma í saxófónleik fékk hann einfalda spurningu: hvort hann ætlaði sinna djasstónlistinni af alvöru. Svarið var nokkuð klárt og stundar Guðjón Steinn nám í saxófónleik við Manhattan School of Music í New York, einn fjórtán saxófónleikara sem þar hófu nám við skólan á fyrsta ári bakkalársnáms.

Guðjón fékk sér kryddbrauð og kaffi í morgunmat áður en hann kom í þáttinn. Hann nýtur þess vera heima í sumarfríi í foreldrahúsum, en í kvöld fer hann fyrir kvartetti sínum á tónleikum í djassklúbbnum Múlanum í Hörpu. Með honum leika þar Hilmar Jensson á gítar, Birgir Steinn Theodórsson á bassa og Matthías MD Hemstock á trommur. Á tónleikunum mun þeir leika nýlegar frumsamdar tónsmíðar Guðjóns Steins sem margar hverjar eru innblásnar af dvöl hans í New York borg í bland við íslenskar rætur hans.

Frumflutt

26. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,