Víðsjá

Félagslegt húsnæði, Sumartónleikar í Skálholti, tilfinningaleg berskjöldun og tvær skáldsögur frá Suður Ameríku

Í þætti dagsins ræðum við við Benedikt Kristjánsson tenorsöngvara og listrænan stjórnanda Sumartónleikar í Skálholti; tónleikaraðar sem hefur verið starfandi frá árinu 1975.

Freyja Þórsdóttir flytur pistil þar sem hún veltir fyrir sér þroska og einlægri nánd með hjálp grísku goðsagnarinnar um Pygmalion.

Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, tekur saman fjögurra pistla seriu sem hún hefur flutt undanfarnar vikur um félagslegt húsnæði og uppbyggingu þess og lýkur hugleiðingum sínum á því ræða um Híbýlaauð, hóp sérfræðinga sem eigin frumkvæði hefur tekið sig saman til bæta og styrkja umræðu og gæði húsnæðisuppbyggingar á Íslandi.

Einnig heyrum við af tveimur nýjum bókum, Hrein eftir Aliu Trabacco Zerán og Drottningarnar í garðinum eftir Caliu Sosa Villada.

Frumflutt

27. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,