ok

Víðsjá

Diddú / Svipmynd

Diddú steig fyrst á svið sem söngkona 19 ára gömul með Spilverki þjóðanna og hefur verið þar nær stanslaust síðan. Hún stefndi á leiklist en var bent á það í söngnámi í London að til Ítalíu skyldi hún fara til að þjálfa sína háu sópranrödd.

Eftir nám í Mílanó sneri Diddú aftur heim og fór beint upp á svið í Íslensku óperunni sem Olympia í Ævintýrum Hoffmans. Hún segir mikið líf hafa verið í Íslensku óperunni á þeim tíma og næg tækifæri fyrir unga söngvara til að stíga sín fyrstu skref. Sorglegt sé að fylgjast með því sem er að gerast í þeirri stofnun í dag, grasrótin reyni að halda senunni á floti, en það sé ekki nóg. Diddú er hvergi nærri hætt að stíga á svið, hún gerir raddæfingar alla morgna og ráðleggur ungum listamönnum að trúa á sjálfa sig og hætta aldrei að leita. Diddú verður gestur okkar í svipmynd dagsins.

Frumflutt

23. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,