Víðsjá

Ymur, Máría, Éditions Grasset og Pissuskálin

Friðrik Margrétar-Guðmundsson sendi frá sér plötuna Ymur um helgina. Hann verður gestur Víðsjár og segir frá tilurð verksins og umfjöllunarefni hennar.

Haukur Þorgeirsson, málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun, heldur áfram fjalla um íslenska ljóðlist fyrri alda, í dag segir Haukur okkur frá Máríu, móður guðs, í kvæðum íslenskra skálda á miðöldum.

Við heyrum af pólitískum menningarvendingum í Frakklandi sem varða Éditions Grasset útgáfufyrirtækið og rifjum upp pistil um Pissuskálina, listaverk sem jafnan hefur verið eignað franska listamanninum Marcel Duchamp en gæti hafa verið úr smiðju myndlistakonunnar Elsu von Freytag-Loringhoven

Birt

22. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,