Víðsjá

Jólakveðja Arnar Magnússonar, Rauði fiskur Rúnu og Vegur allrar veraldar/rýni

Í jólabókaflóðinu þetta árið er finna bók fyrir allra yngstu lesendurna sem er algjör perla. Bók sem kom fyrst út árið 1972 en hefur verið endurútgefin, Rauði fiskurinn eftir Rúnu. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Rúna er fædd í nóvember árið 1926 svo hún verður hundrað ára á næsta ári, en hún flutti nýverið á Hrafnistu í Hafnarfirði þangað sem Víðsjá heimsótti hana.

Fyrir hver jól, frá því hann tók við tónlistarstjórn í Breiðholtskirkju fyrir 14 árum, hefur Örn Magnússon útsett jólalög úr íslenskum tónlistararfi fyrir kór Breiðholtskirkju, hljóðfæraleikara og einsöngvara. eru þessi jólalög komin út á plötu og við báðum Örn um líta við í hljóðstofu og segja okkur nánar af tilkomu hennar.

Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Veg allrar veraldar eftir Sigríði Hagalín

Frumflutt

16. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,