Víðsjá

Svipmynd: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er myndasöguhöfundur, barnabókahöfundur, tónlistarkona og myndlistarkona. Lóa Hlín elskar reyna skilja fólk og í myndasögum hennar birtist hárbeitt samfélagsrýni þar sem hún greinir tíðarandann á einstakan hátt. Hún er einn af stofnendum hljómsveitarinnar FM Belfast og hefur gefið út nokkrar barnabækur, bæði sem myndhöfundur og rithöfundur og var bók hennar Grísafjörður tilnefnd til Norrænu barna- og ungmennabókverðlaunanna og framhald hennar Hérafjörður var nýverið tilnefnd til Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna. Lóa lærði myndlist í FB og Listaháskóla Íslands, myndskreitingar við Parsons listaskólann í New York og ritlist í Háskóla Íslands. Hún gefur samt ekki mikið fyrir prófgráður og leggur mesta rækt við lifa gleðiríku lífi og vera samkvæm sjálfri sér. Lóa Hlín er eldheitur aktivisti sem brennur fyrir félagslegu réttlæti og í þá átt rennur sköpunarkraftur hennar þessi dægrin. Lóa Hlín verður gestur okkar í svipmynd vikunnar.

Frumflutt

5. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,