Flakk

12082021 - Flakk - Flakk um Héðinsreit

Seint í júní á þessu ári var fjallað um tvo stóra byggingareiti í Reykjavík, Heklureit annars vegar og Héðinsreit hins vegar. Við tökum upp þráðinn í dag og fjöllum nánar um Héðinsreitinn. Deiliskipulag hefur verið samþykkt og hönnun reitsins er í fullum gangi. Hollenska arkitektastofan Jwantspejker með Orra Steinarsson arkitekt í farabroddi um deiliskipulagið, en mun einnig hanna eitthvað af þeim íbúðablokkum sem þarna munu rísa ásamt Hjalta Brynjarssyni arkitekt hjá Arþing Nordic, við ræðum við báða í dag. Þarna er ætlunin byggja 330 íbúðir, en hvernig kemur þetta til með falla eldra umhverfi? Við erum tala um atvinnusvæði, sem náði frá Seljavegi, yfir allan þennan reit Ánanaustum. Nálæg íbúabyggð er lágreist, á Vesturgötu, Nýlendugötu og Seljavegi, hins vegar hefur þegar verið byggð nokkuð stór blokk við Mýrargötuna, og úti á Granda eru nokkur vegleg hús, því virðist viðmiðið vera við hærri byggð á svæðinu. Hér í stúdíói sitja Róbert Aron Róbertsson framkvæmdastjóri Festis, sem er eigandi lóðarinnar og Pawel Bartoszek formaður samgöngu- og skipulagsráðs borgarinnar.

Frumflutt

12. ágúst 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flakk

Flakk

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

Þættir

,