Ósamhljóða lögfræðiálit um vararíkissaksóknara, telur áfengissölu Hagkaups óábyrga
Niðurstaða ráðherra í máli vararíkissaksóknara er órökrétt að mati ríkissaksóknara. Rétt hefði verið að fela sérfræðinganefnd að meta hvort veita ætti honum endanlega lausn frá störfum eða ekki.
Tvö lögfræðiálit sem dómsmálaráðherra óskaði eftir til að meta stöðu vararíkissaksóknara voru ósamhljóða um hvort hann hefði farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis í ummælum um flóttafólk.
Fjármálaráðherra segir áfengissölu Hagkaups óábyrga. Unglingadrykkja hafi aukist samhliða mjög alvarlegum ofbeldisbrotum sem oft séu tengd vímuefnanotkun. Ráðherra segir fyrirtæki úti í bæ ekki geta breytt lýðheilsustefnu þjóðarinnar upp á sitt eindæmi.
Þrír starfsmenn Rauða krossins voru drepnir í loftárás í Úkraínu í dag. Alþjóðaráð Rauða krossins segir samviskulaust að loftárásir séu gerðar á dreifingarstaði hjálpargagna.
Hækka á frítekjumark ellilífeyrisþega samkvæmt fjárlagafrumvarpi, en það hefur staðið í stað í mörg ár. Hækkunin nemur rúmum 11 þúsund krónum.