Öryggisráð kallað saman vegna mannfalls á Gaza, Nýr landspítli gæti tafist og methagnaður Landsvirkjunar
29. febrúar 2024
Leiðtogar víða um heim kalla eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza eftir að Ísraelsher skaut á íbúa sem þyrptust að bílum með hjálpargögn.
Stjórn Landspítalans hefur þungar áhyggjur af að bygging Nýs Landspítala frestist úr hófi fram og telur að eftirlit með kostnaði hafi brugðist.
Rekstur Landsvirkjunar hefur aldrei gengið betur en í fyrra. Hagnaður jókst um 19 prósent og lagt er til að ríkið fái 20 milljarða í arðgreiðslu.
Farið verður yfir afhendingaröryggi vatns og raforku á Suðurnesjum á upplýsingafundi í Reykjanesbæ í kvöld.
Reglur ESA sem íslensk stjórnvöld staðfestu í nóvember setja strangar reglur um notkun lifandi dýra í vísindaskyni og viðurkenna íslensk stjórnvöld að blóðtaka úr fylfullum hryssum falli þar undir. Óvíst er því hvort fyrirtæki á við Ísteka fái fleiri leyfi til blóðtöku.
Norðurþing hefur gert tilboð í gamla Íslandsbankahúsið á Húsavík og hyggst breyta því í ráðhús. Mygla er í núverandi stjórnsýsluhúsi og í stað þess að ráðast í dýrar endurbætur þótti rétt að finna hentugra húsnæði.