Varðskipið Þór er á leið vestur vegna neyðarkalls sem barst frá Hornströndum. Talið er að erlendir ferðamenn séu villtir í suðvestanstormi þar. Tvær skútur og einhverjir minni bátar losnuðu á Pollinum á Ísafirði og rak upp í fjöru. Appelsínugul veðurviðvörun var á svæðinu.
Forstjóri Vinnumálastofnunar óttast að hópuppsagnir í ágúst geti verið fyrstu merki kólnunar í hagkerfinu og skráð atvinnuleysi, sem var 3,1% í júlí eigi eftir að aukast.
Vísbendingar eru um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Enn gýs úr tveimur gosopum en dregið hefur úr krafti gossins.