Gaza, skólar fyrir grindvísk börn, fjölmiðlar og vatn til Eyja
21, nóvember 2023
Vopnahlé milli Ísraels og Hamas gæti verið innan seilingar. Benjamin Netanyahu forsætisráðherra hittir ríkisstjórn sína núna klukkan sex að íslenskum tíma til að ræða drög að samkomulagi um lausn gísla.
Fjórir safnskólar í Reykjavík verða starfræktir fram að jólafríi fyrir grunnskólabörn frá Grindavík, sem geta líka sótt um að ganga í hverfisskóla þar sem þau dvelja. Borgarstjóri segir að markmiðið sé að skapa öryggi fyrir börn frá Grindavík. Rætt við Dag. B. Eggertsson.
Menningar- og ferðamálaráðherra, segir miður að aðgengi fjölmiðla að hættusvæðinu við Grindavík hafi verið skert og hefur þegar komið athugasemdum þar að lútandi til aðgerðastjórnar lögreglu. Rætt við Lilju Dögg Alfreðsdóttur.
Neysluvatnslögnin til Vestmannaeyja er mjög skemmd. Vonast er til að hún endist þar til hægt verður að laga hana eða leggja nýja.
Orkusjóður er farinn að styrkja jarðhitaleit á ný og hefur úthlutað 450 milljónum í von um hitaveituvæðingu á sjö stöðum. Finnist heitt vatn sparar það ríkinu fé því það niðurgreiðir rafkyndingu fyrir tvo og hálfan milljarð króna á ári.
Tækniheimurinn í Kísildal leikur á reiðiskjálfi eftir að forstjóra fremsta grevigreindarfyrirtækis heims var sagt upp störfum fyrir helgi.