Líkur aukast á gosi, nýjir gasmælar, árásir á Úkraínu, dýr um áramót
Auknar líkur eru taldar á eldgosi við Grindavík, samkvæmt nýju hættumati Veðurstofu. Landris heldur áfram og nálgast að vera jafn mikið og fyrir gosið 18. desember.
Bæjarstjóri Grindavíkur gleðst yfir byggingu varnargarðs. Ráðgert er að framkvæmdir hefjist strax á nýju ári.
Nýir og fullkomnir gasmælar eru komnir til landsins og verða settir upp í þéttbýli á Reykjansskaga á næstu dögum.
Talsmaður ísraelskra stjórnvalda segir að loftárás á flóttamannabúðir á aðfangadag þar sem tugir létu lífið, hafi verið hörmuleg mistök.
Minnst 28 fórust í umfangsmikilli árás Rússa á Úkraínu í morgun. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt árásirnar og hvatt Rússa til að virða alþjóðalög.
Dýralæknir hjá Matvælastofnun hvetur fólk til að huga vel að dýrum sínum um áramót. Flugeldar geti valdið dýrum langvarandi angist.