Aukin hætta á að gjósi innan Grindavíkur, forsætisráðherra Frakka segir af sér og strokulaxar
Líkur hafa aukist á að hraun komi upp innan Grindavíkur og miklar líkur eru taldar á kvikuhlaupi eða gosi í Svartsengi á næstu þremur til fjórum vikum í nýju hættumati.
Forsætisráðherra Frakklands sagði af sér í dag, en heldur áfram sem leiðtogi starfsstjórnar þar til hægt verður að mynda nýja ríkisstjórn eftir nýafstaðnar kosningar.
Aldrei hafa strokulaxar veiðst í jafn mörgum ám og í fyrra og aldrei hafa veiðst fleiri strokulaxar en þá.
Sjúkraliðar hafa undirritað nýjan kjarasamning á sömu nótum og þeir sem gerðir hafa verið á almenna vinnumarkaðinum.
Covid hefur greinst á átta deildum á Landspítalanum. Frá og með morgundeginum er grímuskylda á spítalanum í öllum samskiptum við sjúklínga og heimsóknir takmarkaðar.
Ísland og Pólland eigast við í undankeppni EM í knattspyrnu kvenna.