Hvorki formaður VG né innviðaráðherra flokksins vilja gefa upp hvort þau muni sækjast eftir forystu í flokknum á flokksráðsfundi um helgina. Bæði segja fólk farið að skila sér aftur í hreyfinguna.
Láglaunakonur á Íslandi eru líklegri til að þjást af kvíða og þunglyndi en tekjuhærri konur. Þær eiga erfiðara með að fá barnapössun og slá lán hjá nákomnum ef eitthvað óvænt kemur upp á. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem kynnt var í dag.
Breyting á raforkusamningi Landsvirkjunar við Norðurál er meðal þess sem skýrir minnkandi hagnað Landsvirkjunar á fyrri hluta ársins. Hagnaður af grunnrekstri fyrirtækisins dróst saman um rúman fjórðung.
Bandaríkjaforseti telur að ekki hafi áður verið jafn stutt í að vopnahlé náist á Gaza. Viðræður hófust í Doha í Katar í gær