Samfylkingin stærst en lækkar frá síðustu könnun, ekki þarf að takmarka sölu á Ozempic og áfallið ekki komið fram í Gríndavík
1. júlí 2024
Samfylkingin mælist áfram stærst flokka í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup en hefur samt misst mest frá síðustu könnun Gallups. Framsóknarflokkurinn tapar einnig fylgi, Viðreisn og Flokkur fólksins bæta mest við sig.
Stjórnvöld í Noregi og Danmörku hafa takmarkað sölu á lyfinu Ozempic til annarra en fólks með sykursýki, en lyfið er meðal annars notað við offitu. Forstjóri Lyfjastofnunar segir að ekki þurfi að takmarka sölu þess hér.
Grindvíkingar hafa margir hverjir farið áfram á hnefanum síðustu mánuði. Hætt er við að áfallið sé ekki komið fram segir Grindvíkingur sem þurfti líka að flýja frá Vestmannaeyjum á sínum tíma.
Kennsla í öllum heilbrigðisgreinum verður undir sama þaki þegar nýtt hús heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands rís.