Þingsetning og stefnuræða forsætisráðherra, mönnun sambýla, kappræður Trumps og Harris, eitruð könguló.
Mörg umdeild mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur. Þar á meðal er frumvarp um breytingar á útlendingalögum og frumvarp sem heimilar netverslun með áfengi.
Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar segir að málum sé vísað til lögreglu þegar slys verða með óútskýrðum hætti, líkt og nýlega á sambýli borgarinnar. Ekki sé vöntun á starfsfólki.
Íslendingur búsettur í Washington telur kappræður Donalds Trump og Kamölu Harris litlu breyta um úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum í nóvember.
Náttúrufræðistofnun hefur til rannsóknar systurkönguló svörtu ekkjunar, en hún laumaði sér heim með konu sem keypti vínber úti í búð.