Vararíkissaksóknari leystur frá störfum, tvö börn látin eftir hnífaárás, Skálmarhlaup, nýting glatvarma á Akureyri
Ríkissaksóknari hefur óskað eftir því við dómsmálaráðherra að vararíkissaksóknari verði leystur frá störfum tímabundið vegna ummæla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum.
Tvö börn létust og minnst sex eru á sjúkrahúsi eftir stunguárás 17 ára pilts í Sothport fyrr í dag. Árásin er ekki skilgreind sem hryðjuverk.
Þjóðskrá vinnur að lausn á vanda sem fósturforeldrar hafa átt við að stríða eftir að gerðar voru breytingar á miðlun forsjár. Þetta segir forstjóri stofnunarinnar.
Heitavatnsnotkun Akureyringa hefur aukist hratt síðustu ár og álag á hitaveituna hefur verið mikið. Til stendur að nýta heitt vatn sem annars færi til spillis í iðnaði, til húshitunar.
Tveir af bestu tennisleikmönnum sögunnar, Serbinn Novak Djokovic og Spánverjinn Rafael Nadal, mættust í annarri umferð í einliðaleik karla á Ólympíuleikunum í París í dag.