Lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík sem geta ekki hafið rekstur aftur horfa upp á að fara í þrot, segir eigandi Stjörnufisks. Hann skorar á stjórnvöld að finna þeim önnur úrræði.
Fjórir erlendir skíðamenn lentu í snjóflóði í Fnjóskadal síðdegis. Allir komust úr flóðinu en einn slasaðist á fæti.
Sífellt fleiri konur leita í kvennaathvarfið á Akureyri.
Sundlaugamenning Íslendinga gæti ratað inn á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Menningarráðherra tilnefndi laugarnar formlega í vikunni.
Það verður æ algengara að fólk taki börn úr skóla í lengri tíma vegna ferðalaga erlendis. Formaður kennarasambandsins segir þetta bitna á náminu, nauðsynlegt sé að hafa samráð við skólana um frítöku.
Það fór um skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður þegar farþegavél hringsólaði yfir Vestfjörðum í drjúgan tíma. Um borð voru margir þeirra tónlistarmanna sem eiga að spila í kvöld.