Fíkniefnasmygl um hafnir, mannfall í Líbanon og Guðmundur Ingi Guðbrandsson vill varaformennsku
Lögreglu tekst einungis að leggja hald á brot af þeim fíkniefnum sem er smyglað hingað og tollgæslan nær bara að skoða brotabrot af vöruflutningagámum. Þetta velur lögregu áhyggjum.
Hátt í 300 féllu í loftárásum Ísraelshers í Líbanon í dag, þar af 21 barn.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, starfandi formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formennsku á landsfundi flokksins um aðra helgi.
Flestir þeirra sem koma í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis leita þangað vegna vinnumansals eða vændis. Hátt í hundrað hafa komið þangað frá því í fyrrasumar.
Fjórir fengu þunga dóma fyrir að smygla amfetamínbasa til landsins. Sá sem skipulagði verkið þóttist hafa hagnast á seldum hljóðverstímum.
Engir hvítabirnir sáust í könnunarflugi Landhelgisgæslunnar yfir Vestfirði.