Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir að dauði andófsmannsins Alexei Navalnys sé á ábyrgð rússneskra stjórnvalda. Framferði Rússa sýni hve mikilvægt sé að styðja við varnir Úkraínu gegn innrás Rússa. Þorgils Jónsson ræddi við Bjarna
Háskólinn í Reykjavík ætlar ekki að fella niður skólagjöld gegn því að fá aukið framlag frá ríkinu. Ragnhildur Helgadóttir rektor segir ástæðuna þá að tekjur skólans myndu skerðast um á annan milljarð króna. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við hana.
Tvö tilfelli til viðbótar af hettusótt hafa greinst og hafa því þrír smitast af sjúklingnum sem greindist í byrjun febrúar.
Sjómenn hafa samþykkt kjarasamning Sjómannasambands Íslands við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi með 63 prósent greiddra atkvæða.
Heimilt er að geyma um sex þúsund dekk í húsnæði við Fellsmúla í Reykjavík sem brann að hluta í gær. Um 70 manns tóku þátt í björgunarstarfi. Benedikt Sigurðsson talaði við Jón Viðar Matthíasson slökkviðlisstjóra.
Gauti Árnason, forseti bæjarstjórnar á Hornafirði, segir í viðtali við Ágúst Ólafsson segir fráleitt að sjá hvernig settar eru fram kröfur ríkisins um þjóðlendur í sveitarfélaginu eru settar fram.