Húsnæðismál Grindvíkinga og hitaveita, nýr sigdalur í bænum, Einar kjörinn borgarstjóri
Stjórnvöld kaupa 70 íbúðir til viðbótar fyrir Grindvíkinga í næstu viku, endurmeta húsnæðisstyrki og ætla að breyta reglum um skammtímaleigu. Þetta er meðal þess sem forsætisráðherra lýsti yfir á íbúafundi með Grindvíkingum sem nú stendur yfir.
Nýr sigdalur myndaðist í Grindavík í kvikuhlaupinu aðfararnótt sunnudags.
Fjörutíu pípulagningamenn vinna að því að koma hita á hús í bænum. Pípulagningameistari segir að íbúar þurfi að gefa umboð svo hægt sé að fara inn í hús þeirra. Þetta hafi tafið vinnuna í dag.
Einar Þorsteinsson tók við sem borgarstjóri Reykjavíkur í dag.
Yfir sextíu prósent þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa skráð kílómetrastöðu bílsins.