1% nemenda í grunn- og framhaldsskólum með hníf, erfiðleikar í ferðaþjónustu og Rússar hopa hvergi í Úkraínu
Um 5% nemenda í grunn- og framhaldsskólum koma með hníf í skólann, langoftast drengir. Eitt prósent þeirra segist koma með hníf sem vopn til að verjast eða meiða, samkvæmt nýrri rannsókn. Stjórnandi hennar ítrekar mikilvægi foreldra í baráttu við vandann.
Rekstur í ferðaþjónustu er erfiður; fjöldi ferðamanna segir ekki alla söguna ef dvöl þeirra styttist segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Sársaukafull hagræðing blasi við hjá mörgum.
Rússneski herinn náði meira landsvæði á sitt vald í Úkraínu í ágúst en í nokkrum mánuði síðan haustið 2022. Innrás Úkraínu í Kúrskhérað virðist ekki hafa náð að draga máttinn úr sókn Rússa.
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir óviðunandi að íbúar á mögulegu náttúruhamfarasvæði missi öryggisnet sitt, líkt og gerðist í viðtæku rafmagnsleysi í gærkvöld.