Heitt vatn streymir aftur á Suðurnesjum, nýtt hættumatskort og skorað á forseta Bandaríkjanna að láta af vopnasendingum til Ísraels
Heitt vatn er farið að skila sér til íbúa á Suðurnesjum, fjórum sólarhringum eftir að hraunelfurin úr Sundhnúksgíg rann yfir Njarðvíkuræð. Forstjóri HS Veitna segir viðgerð hafa gengið vonum framar. Forsætisráðherra segir mikilvægt að huga að framtíðarskipulagi út frá náttúruvá.
Hættumat við Grindavík er óbreytt, enn er hætta á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Land rís við Svartsengi á sama hraða og eftir síðustu gos.
Karl Sigurbjörnsson látinn.
Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins hvetur forseta Bandaríkjanna til að draga úr vopnasendingum til Ísraela.
Skip dregið með vinnuvélum í höfn á Djúpavogi eftir strand í Innri-Gleðivík.