Tveggja flokka starfsstjórn tekur við - kosið 30. nóvember. Sambandslaust Norðanlands.
Halla Tómasdóttir forseti hefur fallist á lausnarbeiðni Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og beiðni um þingrof. Við tekur tveggja flokka starfsstjórn, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.
Kosið verður fyrstu helgina í aðventu. VG tekur ekki þátt í starfsstjórn og ráðherrar flokksins verða almennir þingmenn á morgun. Þetta segir formaður VG.
Formaður Framsóknar segir að nægilegt traust ríki milli hans og formanns Sjálfstæðisflokksins, þó óneitanlega sé það minna en áður.
Öll fjarskipti lágu niðri á stórum hluta Norðurlands í tæpan hálftíma í dag. Tetra kerfið var stopult og sumsstaðar því alveg sambandslaust.
Kamala Harris leiðir í skoðanakönnunum í fjórum af sjö sveifluríkjum fyrir kosningarnar Vestanhafs. Donald Trump leiðir í hinum þremur. Sléttar þrjár vikur eru til kosninga.
Kennarar mótmæltu við Ráðhús Reykjavíkur í dag, ummælum borgarstjóra um kennarastörf. Um 50 kennarar í borginni íhuga hópuppsögn.