Miklabraut í göng, gos gæti hafist með krafti, Árneshreppur spáir í sameiningu
Margt er til bóta í uppfærðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins að mati formanns umhverfis- og samgöngunefndar. Gert er ráð fyrir að Miklabraut fari í jarðgöng.
Eldgosið sem talið er að vofi yfir gæti hafist með krafti. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir að vísindamenn telji að það dragi til tíðinda hvað úr hverju.
Forsætisráðherra þykir ekki góð þróun hve margir taka verðtryggð lán vegna hárra vaxta. Bæta þurfi hagspár.
Sex er enn saknað eftir að lúxussnekkja sökk undan ströndum Sikileyjar í gærmorgun. Snekkjan sökk á nokkrum mínútum í óvæntum óveðurshvelli.
Vilji íbúa Árneshrepps til sameiningar við annað sveitarfélag verður kannaður á morgun. 53 búa í hreppnum, en viðmið sveitarstjórnarlaga er þúsund íbúar.